
Útgerðarfélagið Ventura AS í Fosnavåg í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát.
Aðaleigandi Ventura AS er Martin André Leinebø.
Nýji báturinn heitir Ventura. Báturinn er 15metrar á lengd og mælist 30brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri bát með sama nafni.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D16 625hk tengd frístandandi ZF 665 V-gír.
Tvær rafstöðvar eru um borð af gerðinni Nanni.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno, Simrad og Olex frá Noregi.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til netaveiða. Netabúnaður og vinnslubúnaður á dekki kemur frá Noregi.
Löndunarkrani er af gerðinni TMP500L frá Vinnuvélum/Ásafli.
Í bátnum er ARG250 stöðugleikabúnaður.
Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir allt að 43stk 460lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Stór borðsalur er í brúnni. Svefnpláss er fyrir sex í lúkar í þremur klefum, auk fullkominnar eldunaraðstöðu með eldavél, bakarofni, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.