Sverrisútgerðin ehf í Ólafsvík fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33 bát.

Gísli Marteinsson verður skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn heitir Glaður. Báturinn er 9.9m metrar á lengd og mælist 11brúttótonn.

Báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra 31 bát með sama nafni sem þjónað hefur útgerðinni dyggilega frá því í árslok 1999.

Aðalvél bátsins er af gerðinni John Deere 6090 550hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno/MaxSea frá Vestan ehf í Grundarfirði.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn verður útbuinn til Neta, línu og handfæraveiða. Handfærarúllur eru frá DNG.

Lest bátsins rúmar 8stk 660lítra fiskikör.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Báturinn er vel búinn tækjum. Demparastólar í brú fyrir skipstjóra og háseta. Í lúkar er fullbúin eldunaraðstaða og svefnpláss fyrir tvo.

Báturinn hefur þegar hafið veiðar.