Nú nýverið voru afgreiddir tveir nýjir Cleopatra bátar til Nordlandsfylkis í Norður Noregi.

Bátarnir eru báðir af gerðinnni Cleopatra 31.  Útgerðarmennirnir eru Trygve Magnus Johnsen frá Alsvåg og Ove Alvestad frá Sortland.

Trygve og Ove verða sjálfir skipstjórar á bátunum, tveir verða í áhöfn.

Báturnir heita Emmy og Ea. Bátarnir eru 9.6 metrar á lengd og mælist 9brúttótonn.

Aðalvélar eru af gerðinni FPT N67, 420hö tengdar ZF 286IV gírum.

Bátarnir eru útbúinn siglingatækjum af gerðinni Simrad, Furuno og Olex.

Þeir eru er einnig útbúnir með vökvadrifinum hliðarskrúfum sem tengdar er sjálfstýringu.

Bátarnir er útbúnir til neta, línu og handfæraveiða.  Netabúnaður er norskur, Línuspil frá beiti og handfærarúllur frá DNG.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 14stk 380lítra kör í lest. Fullbúin eldunaraðstaða er í lúkar. Svefnpláss er þrjá í lúkar.
Bátarnir eru kominn til Noregs