Útgerðarfélagið Dodda ehf á Húsavík fékk nú í vikunni afhentann nýjan yfirbyggðan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni standa frændurnir Sigurður Haukur Eiðsson og Gunnlaugur Karl Hreinsson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Karólína ÞH 111. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Karólína er af gerðinni Cleopatra 38. Sigurður Haukur Eiðsson verður skipstjóri á Karólínu.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE 700hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn Furuno siglingatækjum frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Mustad línubeitningakerfi er á millidekki fyrir 15.000 króka. Línuspil og færaspil er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Ísfelli og Viking.
Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.