Skipstjóri og aðaleigandi bátsins er Haraldur Árni Haraldsson. Bátnum var siglt frá Íslandi til Norður Noregs núna um páska.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Aldís Lind. Báturinn er 15m langur og 4.65m breiður og mælist 30brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222TI 800hp tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad frá Sónar ehf og FAJ ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum WESMAR hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar er sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til línuveiða með yfirbyggðu vinnudekki. Beitningavél og rekkakerfi fyrir 25.000 króka er frá Mustad. Línuspil og færaspil er frá Beiti ehf.
Löndunarkrani af gerðinni TMP 300L frá Ásafli ehf.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 23stk 660lítra og 19stk 400L kör í lest. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir sex í lúkar, eldunaraðstöðu með öllum nauðsynlegum búnaði.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar í Noregi.