Útgerðarfélagið Heimsskautssport ehf í Grímsey fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 44 bát.
Heimskautssport ehf er í eigu bræðranna Sigurðar og Jóhannesar Henningssona.
Nýji báturinn heitir Björn EA 220. Báturinn er 12.99metrar á lengd, 3.8metra breiður og mælist 20brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra 38 bát með sama nafni sem útgerðin fékk afhentan árið 2005.
Skipstjóri á bátnum er Sigurður Henningsson.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM 700hö tengd ZF 325IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni frá Sónar ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til Netaveiða. Netabúnaður er frá Beiti ehf.
Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 15stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Borðsalur í brú. Salerni/sturta. Svefnpláss er fyrir þrjá menn.
Fullbúið eldhús er í brúnni með öllum nauðsynlegum búnaði. S.s. eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.