Í lok nóvember var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Vardø í Finnmerkurfylki í Noregi. Kaupandinn er Birger Sørstrand sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Veronica. Hann mælist 19brúttótonn og er af gerðinni Cleopatra 42 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38. Þetta er fyrsti báturinn sem afgreiddur er úr nýrri skipasmíðastöð sem opnuð hefur verið að Óseyrarbraut 29 í Hafnarfirði.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM 700hp tengd ZF V-gír. Í bátnum er ljósavél að gerðinni Westerbeke. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC. Hann er með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans.
Báturinn er útbúinn til netaveiða auk þess að stunda veiðar á kóngakrabba hluta úr ári. Netabúnaður frá Rapp. Í bátnum er ískrapavél frá Kælingu. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði. Rými er fyrir 11stk 660 lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta.
Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í desember.