Í síðustu viku var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Stonehaven á austurströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur Ian Mathieson sjómaður frá Stonehaven sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Dalwhinnie. Báturinn er 19brúttótonn. Dalwhinnie er af gerðinni Cleopatra 42, sem er ný útgáfa af hinum vinsæla Cleopatra 38 bát. Nýji báturinn er annar báturinn sem afhentur er til útgerðarinnar, sá nýji mun leysa af hólmi eldri og minni Cleopatra bát sem eigendurnir fengu afhentann á vormánuðum 2002.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM 11 610hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn 17kW rafstöð af gerðinni Westerbeke.
Siglingatæki koma frá Furuno. Hann einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til gildruveiða á humri og nokkrum krabbategundum. Reiknað er með að báturinn muni draga 1000gildrur á dag. Í bátnum eru tvær fiskilestar. Önnur er sjótankur sem hægt er að skipta í þrennt til að halda tegundum aðskyldum. Hin lestin er útbúinn sjálfvirku sjóúðunarkerfi til að halda humri lifandi um borð.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 16stk 380lítra kör í lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Stonehaven allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar í næstu viku.