Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Femmes de Legende. Báturinn er 17brúttótonn. Femmes de Legende er að gerðinni Cleopatra 40, sem er ný útgáfa af hinum vinsæla Cleopatra 38 bát. Cleopatra 40 er 12m langur skrokkur.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158TIM 600hp tengd ZF360IV gír.
Báturinn er útbúinn 6kW rafstöð af gerðinni Westerbeke. Siglingatæki eru frá Furuno. Hann einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til netaveiða og makrílveiða með handfærarúllum.
Netaborð er frá Beiti. Handfærarúllur eru frá DNG.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 16stk 380lítra kör í lest. Lestin er útbúinn með kælikerfi. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Lorient allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar í næstu viku. 4 menn verða í áhöfn.