Núna nýverið var afhentur nýr Cleopatra bát urtil Burnmouth á austurströnd Skotlands.
Að útgerðinni stendur John Affleck sjómaður frá Burnmouth sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.  John er okkur að góðu kunnur enda er báturinn fjórði báturinn sem við afhendum útgerðinni.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Soph-Ash-Jay-3.  Báturinn er 15brúttótonn.  Soph-Ash-Jay-3 er af gerðinni Cleopatra 40. 
Einn af eldri bátum útgerðarinnar Cleopatra 40 sem útgerðin fékk afhendann 2017 verður áfram í rekstri.  Nýji báturinn mun leysa af hólmi eldri og Cleopatra 38 bát frá 2008.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hp tengd ZF 325IV gír.
Báturinn er útbúinn 17kW rafstöð af gerðinni Scam/Kubota.  Siglingatæki koma frá Simrad.  Báturinn er með uppsettar Olex og MaxSEA skipstjórnartölvur.
Hann einnig útbúin með vökvadrifnum skut og bógskrúfum sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Í bátnum er andvelti gýrókúla.
Báturinn er útbúinn til gildruveiða á humri og töskukrabba.  Reiknað er með að báturinn muni draga 1000gildrur á dag.
Í fiskilest bátsins er sjálfvirkt sjóúðunarkerfi til að halda humri lifandi um borð.  Með þessu fyrirkomulagi fæst mun meira aflaverðmæti.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 17stk 380lítra kör í lest.  Í vistarverum er, svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Burnmouth allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar.