Nú um miðjan júlímánuð var afgreidd ný Cleopatra 38 til Vannareid, í Tromsfylki í Noregi. Kaupandi bátsins er PR Burøyfisk AS. Eigendur PR Burøyfisk AS eru Eivind Larsen og Hugo Johannessen sem jafnframt verða skipverjar á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Burøyværing. Báturinn mælist 15brúttótonn. Burøyværing er af gerðinni Cleopatra 38.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 650hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Koden og JRC.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða en mun auk þess stunda stunda veiðar með línu hluta úr ári.
Búnaður til neta og línuveiða kemur frá Lorentzen í Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í ágúst. Fyrst á línu fram á haust og skipti svo yfir á net