Útgerðarfélagið Einhamar ehf í Grindavík fékk nú á dögunum afhentann nýjan yfirbyggðan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni stendur Stefán Kristjánsson. Skipstjóri á bátnum er Óskar Sveinsson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Auður Vésteins GK 88. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Auður Vésteins er af gerðinni Cleopatra 38. Einhamar gerir einnig út Cleopatra 38 bátinn Gísla Súrsson GK 8.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715hp tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler. Í bátnum er ískrapavél.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum frá Radiomiðun.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línubeitningakerfi af gerðinni Mustad er á millidekki fyrir 17.000 króka. Línuspil og færaspil er frá Beiti.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp