Útgerðarfélagið Friðfinnur ehf á Flateyri fékk í vikunni afhentann nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni standa feðgarnir Hjörtur Hinriksson og Hinrik Kristjánsson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Friðfinnur ÍS 105. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Jón Magnússon verður skipstjóri á Friðfinni. Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er útbúinn með 20kW ljósavél frá Kohler.
Vkvadrifin hliðarskrúfa er í bátnum tengd sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti. Átakskerfi er frá Elcon.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.