Útgerðarfélagið Stekkjavík á Raufarhöfn fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni standa bræðurnir Ragnar Axel og Hólmgrímur Jóhannssynir.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Nanna Ósk II ÞH-133. Báturinn er 15brúttótonn og er í aflamarkskerfinu. Nanna Ósk II er af gerðinni Cleopatra 38. Fyrir á útgerðin Nönnu Ósk, Cleopatra 33 bát með sama nafni sem útgerðin fékk afreiddann árið 1999. Nanna Ósk verður gerð út áfram.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE 700hp tengd ZF325IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða og línuveiða með beitningatrekt.
Allur veiðibúnaður er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.