Nú nýverið var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Vågstranda sem er sveitarfélag í Mæri og Raumsdal í Noregi.
Kaupandi bátsins eru feðgarnir Johan og Tobias Solgård.  Tobias er skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Bajas.  Báturinn mælist 11brúttótonn.  Bajas er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 500hp tengd ZF V-gír.  Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC og Furuno.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er sérútbúinn til gildruveiða á humri.
Spilbúaður og gildruborð er útfært af Trefjum.  Í lestinni er úðunarkerfi til að halda humri lifandi sem eykur aflaverðmæti til muna
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Lestin er útbúinn fyrir 12stk 380lítra kör eða fleiri minni kassa.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla og salerni með sturtu.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.