Nú í vikunni var afhentur nýr Cleopatra 31 bátur. Að útgerðinni stendur Guðmundur Eiríksson.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Haukafell SF 111. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31 í nýrri útgáfu. Hann mælist 8.5brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Báturinn er útbúinn 4stk DNG handfærarúllum. Í bátnum er vökvakerfi tilbúið til línuveiða.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6HE1TCX 370hp tengd ZF 280IV gír (gírhlutfall 2.063 : 1).

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni frá Sónar.
Sjálfstýring: Comnav Commander P2
JRC JF-130 BB (50/200kHz)
GPS Plotter: Seiwa Explorer 3 BB (C-MAP)
VHF: Simrad RT-64

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12-14stk 380lítra kör í lest. Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél og örbylgjuofni. Setkrókur er í lúkar og stólar fyrir skipstjóra og háseta í brú.

Báturinn er annar í röðinni af fjórum sem hafa verið smíðaðir af þessari gerð nú í vor. Sá fyrsti Ólafur HF- 51 er nú í sýningarferð hringinn í kringum landið.