Að útgerðinni standa Ingvar Pétursson og Bryndís Sigurðardóttir.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Herja ST-166. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31 í nýrri útgáfu. Fyrir á útgerðin annan bát Hlökk ST-66 af gerðinni Cleopatra 38 sem afhentur var í byrjun árs 2006.
Nýji báturinn er 8.5brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Báturinn er einnig útbúinn til grásleppu og handfæraveiða.
Línuspil er frá Beiti. Netabúnaður frá Rapp. Báturinn mun byrja á grásleppuveiðum núna fram eftir vori.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6HE1TCX 370hp tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12-14stk 380lítra kör í lest. Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél og örbylgjuofni.
Setkrókur er í lúkar og stólar fyrir skipstjóra og háseta í brú.