Útgerðarfélagið Þráinn Sigurðsson ehf fékk fyrir stuttu afhentann nýjan Cleopatra bát.
Að útgerðinni stendur Þráinn Sigurðsson og er hann jafnframt skipstjóri á bátnum.
Að útgerðinni stendur Þráinn Sigurðsson og er hann jafnframt skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Amanda SU 47. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31.
Nýji báturinn er 8.5brúttótonn og er í aflamarkskerfinu. Báturinn er útbúinn til neta og handfæraveiða. Netaspil er frá Sjóvélum.
Handfærarúllur eru 5 frá DNG.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6HE 375hö tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Raymarine frá Sónar.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12-14stk 380lítra kör í lest. Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél og örbylgjuofni.