Nú á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Vardø í Finnmerkurfylki í Noregi. Kaupandinn er Kent Are Esbensen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Vardøjenta.
Hann mælist 15brúttótonn og er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno. Hann er með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans.
Báturinn er útbúinn til línu og netaveiða auk þess aðstunda veiðar á kóngakrabba hluta úr ári. Línubúnaður er fráBeiti og netabúnaður frá Rapp. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði. Rými er fyrir 11stk 660 lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta.
Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú á næstu dögum.