Útgerðarfélagið Lauritzen Fisk AS í Kjøllefjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát..
Það er Daniel Lauritzen sem stendur að útgerðinni. Daniel verður jafnframt skipstjóri á bátnum.
Þetta er annar báturinn sem útgerðin fær afhentan frá Trefjum. Árið 2019 fékk útgerðin samskonar bát afhentan. Útgerðin mun reka báða bátanna samhliða.
Nýji báturinn heitir Tinder. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 350hö tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Olex og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til línuveiða og netaveiða. Línuspil er frá Beiti og netabúnaður kemur frá Noregi.
Lest bátsins rúmar 15stk 380lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn er nýkominn til heimahafnar í Noregi og hefur veiðar á næstu dögum.