Tom Egil Hansen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36.

Tom Egil verður sjálfur skipstjóri á bátnum.

 

Nýji báturinn heitir Maya. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn. 

 

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 350hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno, Olex og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til Línu og netaveiða.  Veiðibúnaður kemur frá Noregi.

Lest bátsins rúmar 15stk 380lítra fiskikör. 

 

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

 

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.

 

Bátnurinn er kominn til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum.