Nú á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Hammerfest, í Finnmerkurfylki í Noregi. Kaupandi bátsins er Jan Asbjørn Edvardsen. Báturinn hefur hlotið nafnið Lida. Báturinn mælist 15brúttótonn. Lida er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 650hp tengd ZF325IV-niðurfærslugír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða.
Búnaður til línuveiða er frá Beiti ehf.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í byrjun nóvember.