Í síðustu var afgreiddur nýr Cleopatra 36 bátur til Kjøllefjord, í Finnmerkurfylki í Noregi.
Kaupandi bátsins er Striptind AS. Eigendur Striptind AS eru Frode Lyngdal, Tor Petter Krogh og Jonny Pedersen sem jafnframt verða skipverjar á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið Vårliner. Báturinn mælist 15brúttótonn. Vårliner er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línu og netaveiða en mun auk þess stunda stunda veiðar á kóngakrabba línu hluta úr ári.
Búnaður til línuveiða er frá Beiti ehf, netaveiðibúnaður kemur frá Rapp í Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í janúar. Fyrst á línu fram á haust og skipti svo yfir á net.