Nú í lok mars var afhentur nýr Cleopatra bátur til Kjøllefjord, í Finnmerkurfylki í Noregi.
Kaupandi bátsins er Útgerðarfyrirtækið Striptind AS. Eigendur Striptind AS eru Frode Lyngdal, Tor Petter Krogh og Jonny Pedersen sem jafnframt verða skipverjar á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Striptind. Báturinn mælist 15brúttótonn. Striptind er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.
Báturinn er annar báturinn sem afgreiddur er til útgerðarinnar en systurskipið Vårliner fékk útgerðin afhent nú í desember síðastliðnum.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða mun auk þess stunda stunda veiðar á kóngakrabba hluta úr ári.
Búnaður til línuveiða er frá Beiti ehf.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í apríl.