
Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát.
Báturinn er af gerðinni Cleopatra 36.
Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni. Ole verður jafnframt skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn heitir Varde. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 410hö tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Olex og Simrad. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til Netaveiða. Veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Lest bátsins rúmar 15stk 380lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur veiðar á næstu dögum.