Nú skömmu fyrir sumarleyfi var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Le Croisic á vesturströnd Frakklands.
Að útgerðinni stendur David Le Dreau. David verður skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Circle D’Or eða «Gullni hringurinn». Sem er hnýttinn tilvísun í gullna hringinn á Íslandi. Báturinn er 11brúttótonn. Circle D’Or er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSC8.3M tengd ZF286IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno og Simrad.
Báturinn mun stunda jöfnum höndum veiðar með línu, netum og gildrum.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í lest. She also has a live-well for shellfish or bait when longlining.
Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Le Croisic allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna seinni hluta ágúst.
3 menn verða í áhöfn.