Piera Gaup útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36. Pieral verður sjálfur skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn heitir Barent Gadus. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 520hö tengd ZF325IV gír.

Ljósavél 9Kw kemur frá Nanni.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til Línu og netaveiða. Veiðibúnaður kemur frá Noregi.

Lest bátsins rúmar 15stk 380lítra fiskikör.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.

Bátnurinn er á leið til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar í lok júní.