Útgerðarfélagið Bergdís ehf ehf á Tálknafirði fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra beitningavélarbát.

Að útgerðinni stendur Guðjón Indriðason.  Synir Guðjóns, Indriði og Magnús Guðjónssynir verða skipstjórar á bátnum.

 

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Indriði Kristins BA 751.  Báturinn mælist 22brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.  Indriði Kristins er af nýrri gerð Cleopatra 40B sem er sérhönnuð undir 12metra mark.  Báturinn mun leysa af hólmi eldri Cleopatra bát útgerðinnar sem seldur var til Noregs.

 

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V 158TI 770hö tengd ZF360IV gír.  Rafstöð er frá Scam/Kubota 40kW.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða með beitningarvél.  Beitningavélarkerfi er frá Mustad, línuspil er frá Beiti ehf og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf.  Ískrapavél og sjókælir frá Kælingu ehf.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

 

Rými er fyrir 12stk 660L, 4stk 460L kör eða 29stk 460L kör í lest.  Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla með aðstöðu fyrir 4 skipverja.  Sæti fyrir áhöfn í brú.  Svefnpláss er fyrir fjóra í tveimur aðskyldum klefum. Salerni og sturtuaðstaða í lúkar.  Borðsalur er í lúkar ásamt fullbúinni eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.