Útgerðarfélagið 2Fisk AS í Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát.
Það eru feðgarnir Tor Øyvind og Øyvind Bolle sem standa að útgerðinni. Tor Øyvind verður skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn heitir Olavjenta. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 400hö tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Olex og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til Línuveiða. Veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Lest bátsins rúmar 15stk 380lítra fiskikör.
Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur þegar hafið veiðar.