Útgerðarfélagið Grábrók ehf á Höfn í Hornafirði fékk nú í vikunni afhentann nýjan Cleopatra 38 línubeitningavélarbát. Að útgerðinni stendur Friðþór Harðarson. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Benni SF 66 og leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni. Nýji báturinn er 15brúttótonn og 11.9brúttórúmlestir og er í krókaaflamarkskerfinu. Báturinn er með yfirbyggðu vinnudekki. Línubeitingarvél og rekkakerfi af gerðinni Mustad frá Sjóvélum hf. Línu og færaspil eru frá Sjóvélum.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6HYM-ETE 700hp tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og tvo skipverja. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp