Útgerðarfélagið Miðvík ehf á Tálknafirði fékk nú á dögunum afhentann nýjan yfirbyggðan Cleopatra 38 bát. Þetta er fyrsta nýsmíði í smábátakerfinu sem afgreidd er til Vestfjarða með línubeitningarvél.
Að útgerðinni stendur Guðjón Indriðason. Skipstjóri á bátnum er Þór Magnússon.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Indriði Kristins BA 751. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan L126 400hö/2100sn tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler. Í bátnum er ískrapavél frá Kælingu.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum frá Sónar.
Báturinn er einnig útbúin með hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línubeitningakerfi af gerðinni Mustad er á millidekki fyrir 17.000 króka. Línuspil og færaspil er frá Beiti.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.