Útgerðarfélagið Stegla ehf á Tálknafirði fékk í síðustu viku afhentann nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni stendur Tryggvi Ársælsson sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.  Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Sæli BA 333 og leysir af hólmi eldri Cleopatra 31 bát með sama nafni. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 715hp tengd ZF gír. Ljósavél er af gerðinni Kohler. Í bátnum er ískrapavél frá Kælingu.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil og færaspil er frá Sjóvélum.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.