
Útgerðarfélagið Hlökk ehf á Hólmavík fékk nú í vikunni afhentan nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni stendur Ingvar Pétursson sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Hlökk ST 66 og leysir af hólmi eldri Cleopötrubát með sama nafni. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6KYM-ETE 650hp tengd ZF325IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línu og netaveiða. Línuspil og færaspil er frá Beiti. Netabúnaður er frá Rapp.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.