Útgerðarfélagið Einhamar ehf. í Grindavík fékk um mánaðamótin afhentan nýjan Cleopatra 38 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Þetta er fjórði bátur þessarar gerðar sem Trefjar afgreiða hér innanlands á þessu ári. Báturinn er systurskip Guðmundar og Hrólfs Einarssona ÍS og Huldu Kela ÍS sem komu til Bolungarvíkur fyrr á árinu.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Gísli Súrsson GK-8. Báturinn leysir af hólmi eldri Cleopötrubát í eigu útgerðarinnar. Eigendur útgerðarinnar eru feðgarnir Stefán Kristjánsson og Kristján Finnbogason. Skipstjóri á bátnum er Grétar Guðfinnsson.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Volvo Penta D12 650hp. Siglingatæki af gerðinni Koden og Max Sea skipstjórnartölva koma frá Radiomiðun. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Spilbúnaður er frá Beiti.

Báturinn er 15 brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu. Rými er fyrir 19 fiskkör af stærðinni 380 lítra í lest. Í bátnum er innangeng, upphituð stakkageymsla. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar. Borðsalur fyrir fjóra er í bátnum auk eldunaraðstöðu með eldavél, gasofni, örbylgjuofn, ísskáp og frystiskáp.