Henning Jóhannesson útgerðarmaður í Grímsey fékk í síðustu viku afhentann nýjan Cleopatra 38 bát. Að útgerðinni standa auk Hennings synir hans Jóhannes og Sigurður. Heimsiglingin gekk vel, þrátt fyrir nokkurn hafís úti fyrir Horni. Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6KYM-ETE 650hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrúnu.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línuspil, beitningatrekt og annar búnaður til línuveiða er frá Beiti. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.