
Nú um áramót var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Napp í Lofoten í Noregi. Kaupandinn er Bjørn Jakobsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum. Báturinn hefur hlotið nafnið Bjørnson. Hann mælist 13.5brúttótonn og er af gerðinni Cleopatra 35 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Raymarine og Simrad. Hann er með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu hans.
Báturinn er útbúinn til línuveiða auk þess að stunda veiðar á krabba hluta úr ári. Línubúnaður er frá Lorentzen. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði. Rými er fyrir 12stk 380 lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta.
Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í janúar.