Útgerðarfélagið Blakknes ehf í Sandgerði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 40BB beitningavélarbáta.
Framkvæmdastjóri Blakkness er Sigurður Aðalsteinsson.
Hulda var hönnuð í samstarfi við Ráðgarð ehf.
Nýji báturinn heitir Hulda GK 17. Báturinn er 12.5metrar á lengd, 6.7metra breiður og mælist 30brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri bát með sama nafni.
Skipstjóri á bátnum Emanúel Þórður Magnússon.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222TI 800hö (22L) tengd frístandandi ZF 665 gír.
Tvær rafstöðar eru í bátnum af gerðinni Scam/FPT 105kW frá Ásafli.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til línuveiða. Beitningavél, rekkakerfi og línuspil er frá Mustad í Noregi.
Búnaður á dekki er frá Micro og Stálorku.
Ísvél og forkælir er frá Kælingu ehf.
Löndunarkrani á er af gerðinni TMP frá Ásafli ehf.
Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Andveltigemir er í bátnum.
Rými er fyrir allt að 54stk 460lítra kör í lest. Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými. Í bátnum er upphituð stakkageymsla fyrir 8manns. Stór borðsalur. Salerni/sturta. Þvottavel og þurrkari. Svefnpláss er fyrir átta í lúkar í 4 aðskyldum klefum.
Fullbúið eldhús er um borð með öllum nauðsynlegum búnaði. S.s. eldavél, bakarofni, örbylgjuofn, ísskáp og uppþvottavél.
Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.