Núna á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra 40 bátur til Burnmouth á austurströnd Skotlands.
Að útgerðinni stendur John Affleck sjómaður frá Burnmouth sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Soph-Ash-Jay-2. Báturinn er 15brúttótonn. Soph-Ash-Jay-2 er af gerðinni Cleopatra 40. Báturinn er þriðji báturinn sem Trefjar afhenda útgerðinni.
Útgerðin mun halda öðrum af eldri bátunum í rekstri Cleopatra 38 ( JAS-N-2) sem útgerðin fékk afhendann 2008. Nýji báturinn mun hins vegar leysa af hólmi eldri og minni Cleopatra 33 bát frá 2003.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hp tengd ZF 325IV gír.
Báturinn er útbúinn 17kW rafstöð af gerðinni Westerbeke. Siglingatæki koma frá Simrad. Báturinn er með uppsettar Olex og MaxSEA skipstjórnartölvur.
Hann einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Í bátnum er andvelti gýrókúla.
Báturinn er útbúinn til gildruveiða á humri og töskukrabba. Reiknað er með að báturinn muni draga 1000gildrur á dag.
Í fiskilest bátsins er sjálfvirkt sjóúðunarkerfi til að halda humri lifandi um borð.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 17stk 380lítra kör í lest. Í vistarverum er, svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Burnmouth allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar.