Nú á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Vallersund í syðri Þrændalögum í Noregi.
Kaupandur bátsins eru feðgarnir Geir Jonny og Joacim Ingolfsen sem jafnframt verða skipverjarar á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Vasøyfisk. Báturinn mælist 15brúttótonn. Vasøyfisk er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til neta og línuveiða. Netabúnaður er frá Rapp og Net-op. Línuspil er frá Beiti.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú í byrjun apríl.