
Nú í lok júní var afgreiddur nýr Cleopatra 36 bátur til Bodø í Noregi.
Kaupandi bátsins er Torfinn Kristiansen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið Erato. Báturinn mælist 15brúttótonn. Erato er af gerðinni Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa af Cleopatra 38.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSM11 610hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og sturtuklefi. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Reiknað er með að báturinn hefji veiðar nú um miðjan júlí.