Nú á dögunum var afhentur nýr Cleopatra bátur til Ålesund í Noregi.
Kaupandi bátsins er Kjetil Måløy sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.
Kaupandi bátsins er Kjetil Måløy sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið Safir. Báturinn mælist 14brúttótonn. Safir er af gerðinni Cleopatra 36.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.
Báturinn er einnig útbúin vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða.
Veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 15stk 380lítra kör í lest. Fullkomin eldunaraðstaða auk borðsals er í lúkar. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu er í stýrishúsi.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.