Á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til La Turballe á vesturströnd Frakklands.
Að útgerðinni stendur Alexis Baumal sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Lauralex II. Báturinn er 11brúttótonn. Lauralex II er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSC8.3M tengd ZF286IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno og Simrad.
Báturinn er útbúinn til línu og gildruveiða.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá La Turballe allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna um miðjan ágúst. 3 menn verða í áhöfn.