Nú á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Fraserburgh í Skotlandi.
Að útgerðinni standa Robert John og Rosalind Tait Morgan. Robert Morgan er skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Makfort. Báturinn 10metra langur og 11brúttótonn. Makfort er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 tengd ZF286IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno. Hann einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til gildruveiða á humri og krabba.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 15stk 380lítra kör í lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Fraserburgh allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar. Reiknað er með að afkastagetan verði ca. 700 gildrur á dag. 2 menn verða í áhöfn.