Munkaklaustur í Grikklandi fékk núna á dögunum afgreiddan nýjan Cleopatra bát. Kaupandi bátsins er klaustrið í Vatopedi „The Holy and Great Monastery of Vatopedi“. Klaustrið er staðsett á Mount Athos skaganum í austurhluta Grikklands.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið “ΒΗΜΑTΑΡΙΣΣΑ” (Vimatarissa). Báturinn er 11brúttótonn. “ΒΗΜΑTΑΡΙΣΣΑ” er af gerðinni Cleopatra 33.

Báturinn er útbúinn tveimur aðalvélum af gerðinni Yanmar 6LY 440hö hvor um sig tengdar ZF280IV gírum.
12kW rafstöð af gerðinni Westerbeke er um borð.
Ískrapavél er frá Kælingu.
Siglingatæki eru frá Furuno.
Báturinn er útbúinn til Neta, gildru, línu og handfæraveiða.
Neta og gildruspil er frá Rapp.
Línubúnaður er frá Able.
Hadfærarúllur eru frá DNG.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í einangraðri lest. Vistarverur eru loftkældar og er þar svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Mount Athos. Báturinn sér 200manna klaustri fyrir fiski allt árið. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðarins. 2-3 menn verða í áhöfn.