
Á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til Noirmoutier á vesturströnd Frakklands.
Að útgerðinni standa feðgarnir Joël og David Penisson frá Noirmoutier. Joël sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.
Að útgerðinni standa feðgarnir Joël og David Penisson frá Noirmoutier. Joël sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið “Petite Sirene”. Báturinn er 11brúttótonn. “Petite Sirene” er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Baudouin 6W126 tengd ZF325IV gír.
Siglingatæki eru frá Furuno.
Báturinn er útbúinn til gildru og netaveiða.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Noirmoutier allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðarins. 2-3 menn verða í áhöfn.