Útgerðarfélagið Sydvest Fiskeri í Bergen í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33.
Að útgerðinni stendur Lars Tore Skår.

Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Skår Jr. Báturinn mælist 11brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N90 410hö tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með hliðarskrúfu að framan tengdri sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til veiða með snurvoð. Spil, trommlur og hýfingarbúnaður er frá Hydema. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12stk 380L kör í lest. Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar ásamt eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.