Útgerðarfélagið Nygrunn AS í Lofoten í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát.
Eigendur Nygrunn AS eru bræðurnir Ørjan og Ketil Sandnes.
Nýji báturinn heitir Nygrunn. Báturinn er 15metrar á lengd og mælist 30brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri eikarbát útgerðarinnar sem byggður var í kringum 1970 og hefur þjónað útgerðinni í 3 ættliði allar götur síðan.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V222 800hö (22L) tengd frístandandi ZF 665 V-gír.
Tvær rafstöðvar eru um borð af gerðinni Scam frá Ásafli.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC, Simrad og Olex frá Noregi.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til netaveiða. Netabúnaður og vinnslubúnaður á dekki kemur frá Noregi.
Annar búnaður á dekki er frá Stálorku.
Í bátnum er ARG250 stöðugleikabúnaður
Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir allt að 43stk 460lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla. Stór borðsalur er í brúnni. Svefnpláss er fyrir sex í lúkar í þremur klefum, auk fullkominnar eldunaraðstöðu með eldavél, bakarofni, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það.