Núna á dögunum var afgreiddur nýr Cleopatra bátur til bæjarins Nervei í Finnmörku í Noregi.
Kaupandi bátsins er Per Birger Persen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Karl-Torgeir. Báturinn mælist 11brúttótonn. Karl-Torgeir er af gerðinni Cleopatra 33.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins QSC8.3 490hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til neta og gildruveiða.
Búnaður til netaveiða kemur frá Rapp í Noregi. Krani er frá TMP.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í lest. Í bátnum er upphituð stakkageymsla og salerni með sturtu. Borðsalur er í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar