Útgerðarfélagið Guðbjartur ehf á Ísafirði fékk nú í janúar afhentann nýja Cleopatra 38 bát. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Guðbjörg ÍS-46 eins og fyrri skip útgerðarinnar. Skipstjóri á bátnum er Guðbjartur Ásgeirsson. Báturinn er 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 6KYM-ETE 650hp tengd ZF gír. Báturinn er ríkulega útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno frá Brimrúnu. Meðal nýjunga er straumhraðamælir, sem ekki hefur áður verið settur í báta í þessum stærðarflokki. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Búnaður til línuveiða er frá Beiti. Átakskerfi á línuspil er frá Elcon. Vinnudekk bátsins er yfirbyggt að hluta.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 11stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn, ísskáp, heitu og köldu vatni.