Kaupandi bátsins er Daniel Lauritzen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.
Báturinn hefur hlotið umtalað nafn Tinder. Tinder er af gerðinni Cleopatra 36, 11metra langur og mælist 14brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 410hp tengd ZF V-gír. Rafstöð af gerðinni Nanni 7.5kW. Andveltigýro af gerðinni Quick er staðsettur í vélarrúmi
Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC.
Báturinn er einnig útbúin vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða.
Línuspil kemur frá Beiti annar veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 15stk 380lítra kör í lest. Stór borðsalur er í brúnni. Fullkomin eldunaraðstaða er í lúkar. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.